 Verk Sigurðar Guðmundssonar listamanns var sem kunnugt er vígt með formlegum hætti við Gleðivík síðastliðinn föstudag. Að því tilefni er ekki úr vegi að birta hér nokkrar myndir frá undirbúningi, vígsludeginum svo og af listaverkinu sjálfu lesendum síðunnar til yndisauka. Fyrir hönd sveitarfélagsins vill undirritaður nota tækifærið hér og þakka listamanninum sérstaklega skemmtilega og gefandi tíma meðan hann dvaldi í Himnaríkinu sínu hér á Djúpavogi. AS.
Eggin komu í þessum trékössum alla leið frá starfstöð listamannsins í Kína

 Egill vandar sig við að koma fyrsta egginu á stöpulinn sinn
 Bryndís Reynisdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi með Sigurði listamanni við fyrsta eggið (lundaeggið)
 Það tóku margar röskar hendur þátt í uppsetningunni og gekk verkið vonum framar
 Hér er stóra lómseggið á leiðinni á stallinn, starfsmenn áhaldahússins vanda til verka
 Og svo var eggið stóra híft á síðasta stöpulinn

Sigurður Guðmundsson og kona hans Ineke stilla sér stolt upp við lómseggið

Á vígsludaginn, Andrés Skúlason oddviti og listamaðurinn Sigurður Guðmundsson afhjúpa verkið
 Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri heiðrar hjónin á vígsludegi
 Og færir þeim tvær myndir að gjöf
 Listamaðurinn flytur ávarp í tilefni dagsins
 Svo er spjallað um listina milli atriða
 Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri og Hlíf Herbjörnsdóttir taka sig vel út við egg skógarþrastarins
 Svo gengu menn með 200 m löngu listaverkinu og skoðuðu hvert egg fyrir sig
 Ingimar Sveinsson og listamaðurinn á góðu spjalli
 Svo var grillað á eftir
 Meira grill
 Andrés Skúlason oddviti ásamt listamanninum við egg óðinshanans
 Ineke og Sigurður bregða á leik við egg steindepilsins
 Listamaðurinn og steindepilseggið
 Horft yfir höfnina og listaverkið ofan af lýsistanknum
 Eggin ólík að lit og formi
 Egg skógarþrastarins
 Lómseggið í forgrunni
 Eggin skarta sínu fegursta við Gleðivíkina
 Strandafjöllin eru flott í bakgrunni eggjanna
 Sigurður og Ineke alsæl að vígsludegi loknum úti á svölum í Himnaríki ( nafn á heimili listamansins)
Hér fyrir neðan má sjá kynningarbækling um eggin í Gleðivík, unninn af ferða- og menningarmálafulltrúa Djúpavogshrepps og sveitarstjóra Djúpavogshrepps.
Smellið hér til að skoða hann |