News
15.03.2011 - Álftirnar streyma inn yfir landið
 

Í dag meldaði Sigurjón Stefánsson 25 álftir á tjörn við Streiti á Berufjarðarströnd og var ein grágæs með í pakkanum og réttu áður hafði Sigurjón séð aðrar 15 álftir á flugi yfir Búlandsnesi.  Það má því segja að þetta séu fyrstu alvöru merkin um komu farfuglanna hér inn á svæðið.  Þó ber þess að geta að stakir fuglar hafa sést hér um nokkra vikna skeið, m.a. stök álft sem hefur haldið sig til við vötnin á Búlandsnesi á siðustu vikum og líklega hefur sá fugl aldrei yfirgefið landið.

AS