News
You are here: Fréttir
20.04.2013 - Grafönd og lómur allt að lifna við |
Þá er graföndin mætt á svæðið en eitt par sást á Borgargarðsvatni í gær. Lómurinn er einnig mættur á Fýluvoginn og skúföndinni er einnig að fjölga á Fýluvogi en nokkuð er síðan skúföndin mætti. Tveir flórgoðar syntu líka um Fýluvoginn í gær. Mikið er af grágæs þessa dagana hér í Djúpavogshreppi og hefur henni fjölgað mikið síðustu daga. Fuglalífið er því allt að lifna við þessa dagana. AS
|