 Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Djúpavogshreppi 2010.
1. gr. Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Djúpavogshreppi er veittur afsláttur af fasteignaskatti af samþykktu íbúðarhúsnæði, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Djúpavogshrepps ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr. Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Djúpavogshreppi (sjá efr. 1. gr.) , sem sækja um afsláttinn á þar til gerðu eyðublaði, búa í eigin íbúð og ............ a. eru 67 ára eða eldri við upphaf álagningarárs, b. hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir upphaf álagningarárs, c. hafa ekki leigutekjur af viðkomandi húsnæði, d. hafa ekki fullvinnandi einstakling / einstaklinga, aðra en maka búsetta á heimilinu, e. skilað hafa inn með umsókninni staðfestu afriti af skattframtali síðast liðins árs, ásamt yfirliti yfir fjármagnstekjur sama árs.
3. gr. Hjón og samskattað sambýlisfólk fær fullan afslátt þó einungis annar aðilinn uppfylli skilyrði 2. gr. Ef um fleiri en einn íbúðareiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði 1. mgr., er veittur afsláttur til þeirra sem uppfylla skilyrði 2. gr., í samræmi við eignarhluta þeirra.
4. gr. Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að kr. 28.000.- Afsláttur er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna, þ.m.t. eignatekna og 50% fjár-magnstekna síðast liðins árs, samkvæmt skattframtali. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks (tekjur í reitum 2.7 og 3.10 á skattframtali).
5. gr.
Tekjumörk eru sem hér segir: Einstaklingar Fullur afsláttur skv. 4. gr. með tekjur allt að kr. 1.975.000 Enginn afsláttur með tekjur yfir kr. 2.530.000 Hjón og samskattað sambýlisfólk Fullur afsláttur skv. 4. gr. með tekjur allt að kr. 2.897.000 Enginn afsláttur með tekjur yfir kr. 3.563.000
Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.
6. gr. Sækja skal um afslátt af fasteignaskatti á eyðublöðum frá Djúpavogshreppi. Hægt að sækja umsóknareyðublað á heimasíðuna www.djupivogur.is Með umsókn skal skila afriti af skattframtali, staðfestu af skattstjóra, vegna síðast liðins árs og afriti af örorkuskírteini ef ums. er 75% öryrki.
7. gr. Sveitarstjórn Djúpavogshrepps endurskoðar reglurnar tímanlega fyrir álagningu hvers árs.
Samþykkt í sveitarstjórn Djúpavogshrepps 22. des. 2009;
|